KVENNAKÓR REYKJAVÍKUR

 

                                                                                                                                   

  Á döfinni
  Stjórn
  Kórkonur
  Stjórnandi
  Senjorítur
  Efnisskrá
  Stundaskrá
  Myndir
  Styrktarfélag
  Viltu syngja?
  Póstlisti
  Tenglar
  Tóndæmi
  Hagnýtar upplýsingar
  Sagan














 

Kvennakór Reykjavíkur
Pósthólf 5146
Sími:  896 6468
Netfang
kvkor@mmedia.is

Kvennakór Reykjavíkur tekur þátt í kóramóti


Kvennakór Reykjavíkur tekur nú þátt í mikilli kórahátíð sem haldin er í
Reykjavík dagna 17. - 21. ágúst. Um 1800 manns taka þátt í þessari hátíð,
kórar frá Norðurlöndunum og Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Bæði er um að
ræða blandaða kóra og karla- eða kvennakóra. Heimasíða hátíðarinnar er hér:
http://choral.iii.is/

Á laugardag munu kórarnir syngja vítt og breitt um Reykjavík á
menningarnótt og mun Kvennakór Reykjavíkur taka þátt í því og syngja fyrir utan Þjóðleikhúsið kl. 14 og á Austurvelli kl. 14. Allir kórar hátíðarinnar munu svo koma saman á Arnarhóli kl. 17:30 og gefa gestum Menningarnætur, forsmekkinn af stórtónleikum allra þátttakenda sem verða haldnir í Laugardalshöll á laugardagskvöld kl: 20.

Aðgangseyrir er 1500 kr. á kvöldtónleikana. Miðasala er við innganginn.


Skrifað: 19. ágúst 2010 af kollutjorva

____________________________________________________________________________________________
 

Nýr Geisladiskur - Reykjavíkurdætur

 

Kvennakór Reykjavíkur hefur gefið út nýjan disk til heiðurs Sigrúnu
Þorgeirsdóttur sem lét af störfum síðasta vetur eftir tólf ára farsæla
stjórnun kórsins.

Diskurinn ber heitið "Reykjavíkurdætur" og er jafnt fallegur fyrir eyrað
sem augað. Á honum eru bæði erlend og innlend lög, valin af Sigrúnu, og má
segja að langflest þeirra hafi eignast sérstakan sess í hugum og hjörtum
okkar allra á þessum tólf árum. Disknum verður dreift í verslanir á allra næstu dögum en einnig er hægt að nálgast hann hjá kórkonum eða panta hann í gegn um tölvupóst. Verð frá okkur er 1800 kr. en í verslunum mun hann kosta 2300 kr.


Skrifað: 19. ágúst 2010 af kollutjorva

____________________________________________________________________________________________
 

Fyrsta æfing haustannar 2010

Fyrsta æfing haustannar verður mánudaginn 20. ágúst kl. 18:30. Æft verður
á Vitatorgi eins og í fyrra. Nýjar áhugasamar konur þurfa að skrá sig í
síma 896-6468 eftir kl. 17. Stefnt er að tvennum jólatónleikum í Neskirkju
í lok nóvember.


Skrifað: 19. ágúst 2010 af kollutjorva

____________________________________________________________________________________________


 

Kvennakór Reykjavíkur tekur þátt í kóramóti
Nú fer brátt í hönd sjötta kóramótið þar sem Norðurlönd og Baltnesku löndin mætast og leggja saman krafta sína. Mót þetta, Kórahátíð Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna (The Nordic – Baltic Choral Festival 2010), var fyrst haldið í Riga í Lettlandi árið 1995 og hefur síðan verið haldið fjórum sinnum, í Svíþjóð, Noregi, Litháen og Eistlandi. Sjötta Kórahátíð Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna verður haldin í Reykjavík dagana 17.-22.ágúst. Kvennakór Reykjavíkur lætur sig ekki vanta, og hefjast æfingar hjá kórkonum 10.ágúst. Þær eru margar farnar að hlakka til að hittast og syngja saman eftir langt sumarfrí.

Áhugamannakórar jafnt sem atvinnukórar mæta til leiks á þessu Norræna-Baltneska kóramóti, góðir fulltrúar landa sinna. Hátt í 1800 þátttakendur hafa boðað komu sína og margt spennandi verður í boði. Vinnuhópar með 100-700 þátttakendum verða að störfum á mótinu og munu flytja afrakstur vinnu sinnar á tónleikum. Kórarnir sjálfir koma einnig víða fram, 2-4 syngja á sömu tónleikum. Boðið verður upp á hádegistónleika og kvöldtónleika, að ógleymdum tónleikum á Menningarnótt Reykjavíkurborgar. Allir kórarnir munu svo syngja saman á lokahnykk mótsins og verður tilkomumikið að sjá og heyra í hátt í 1800 manna kór. Lokatónleikarnir verða haldnir í Laugardalshöll 21.ágúst kl.19:30, og samtals verða flutt 26 verk þetta lokakvöld.

Þegar kóramótinu lýkur hefst vetrarstarf Kvennakórsins. Æfingar verða haldnar í ágætu húsnæði Reykjavíkurborgar að Vitatorgi, eins og tvo undanfarna vetur. Nánar verður tilkynnt um tilhögun æfingatíma síðar. Í upphafi vetrarstarfs viljum við gjarnan sjá nýjar konur bætast í hópinn, og bjóðum þær alltaf velkomnar. Áhugasamar konur eru hvattar til að hafa samband.


Skrifað: 5.ágúst 2010 af kollutjorva

____________________________________________________________________________________________


 

Vortónleikar Senjoríta 2010
 

Vortónleikar Senjoríta Kvennakórs Reykjavíkur verða laugardaginn 15. maí
kl. 14 í Neskirkju.

Efnisskráin er fjölbreytt og skemmtileg. Lítill kammerhópur
syngur nokkur lög og nemendur úr Tónskólanum Doremi koma fram.

Kórstjóri er Ágota Joó og undirleikari er Vilberg Viggósson.

Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur er kór fyrir konur 60 ára og eldri.

Tryggið ykkur miða í tíma.

Gleðilegt sumar!

 


Skrifað: 14.maí 2010 af kollutjorva

____________________________________________________________________________________________


 

Vortónleikar í Lindakirkju 2010
Senn líður að árlegum vortónleikum Kvennakórs Reykjavíkur. Kórkonur munu raða sér á söngpallana í Lindakirkju í Kópavogi og syngja inn vorið fyrir góða gesti á tvennum tónleikum þann 9. maí. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 17:00 og þeir síðari kl.20:00. Lindakirkja er að Uppsölum 3, 201 Kópavogi og má sjá staðsetninguna betur hér.
 
Þetta eru fyrstu tónleikar kórsins með nýjum kórstjóra, Ágotu Joó, sem tók til starfa um síðustu áramót. Ágota hefur stýrt Senjorítunum við góðan orðstír um árabil, og hefur nú Kvennakór Reykjavíkur einnig fengið hana til samstarfs. Við hlökkum til að flytja ykkur efnisskrá vorsins, sem er í senn spennandi, krefjandi og skemmtileg.

Lögin koma úr ýmsum áttum og sungið er á ensku, ítölsku, ungversku, þýsku, rússnesku, frönsku og íslensku. Við munum flytja ákaflega fallegt og sérstakt nútímakórverk, Éjszaka, eftir ungverska tónskáldið József Karai.
Annað ungverskt lag er þjóðlagið Dancing-Song, sem við flytjum  í útsetningu Zoltán Kodály.
Það er sérstaklega skemmtilegt fyrir kórinn að fá að flytja tónverk frá Ungverjalandi, heimalandi Ágotu, á þessum fyrstu tónleikum hennar með okkur.
Kórinn mun einnig syngja hugljúf verk eftir eldri meistara svo sem Rossini og Schumann; seiðandi tangó eftir Piazzolla og sveiflutónlist sem er nýrri af nálinni eftir Louis Prima og John Davenport, svo nokkuð sé nefnt.

Píanóleikari verður Vignir Þór Stefánsson og með honum leikur Tríó Vadim Fjodorov. Tríóið skipa Vadim Fjodorov á harmoníku, Gunnar Hilmarsson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa. Miðaverð er kr 2.200 í forsölu og kr 2.800 við innganginn. Miða má nálgast hjá kórkonum, hringið í síma 896-6468 eftir kl.16 eða sendið pöntun á netfangið kvkor@mmedia.is.

Tryggið ykkur miða í tíma.

Gleðilegt sumar!

 


Skrifað: 28.april 2010 af kollutjorva

____________________________________________________________________________________________


 

Kvennakórinn á gogoyoko

Nú eru allir diskar Kvennakórs Reykjavíkur orðnir aðgengilegir á vefsíðunni gogoyoko.com. Þetta eru diskarnir Víf, Jól og Konur. Auk þess er von á glænýjum diski frá kórnum innan tíðar og verður hann einnig til sölu á síðunni.
Kórinn gefur 10% ágóðans af sölu diskanna til góðgerðarmála.

www.gogoyoko.com er tónlistarsamfélag þar sem hægt er að hlusta frítt eða kaupa sér tónlist, gefa plötum einkunn og skrifa um þær gagnrýni.
Öllum sem skrá sig er veittur frír aðgangur að streymi á allri tónlist sem í boði er á vefnum en að sjálfsögðu er einnig hægt að kaupa það sem fólki líst best á.
Við hvetjum alla til að skrá sig á síðuna, kíkja á plöturnar okkar og jafnvel gefa þeim einkunn. Það er algjörlega ókeypis.
 

Svæði Kvennakórsins á gogoyoko er hægt að skoða með því að smella hér

Hægt er að nálgast plöturnar á gogoyoko með því að smella á myndirnar hér að neðan.


Skrifað: 20.april 2010 af kollutjorva

 

Sungið á sjö tungumálum

Helgina 5. - 7. mars fór Kvennakór Reykjavíkur í sínar árlegu æfingabúðir. Dvalið var í góðu yfirlæti að Skógum undir Eyjafjöllum og æft stíft, enda veitir ekki af með þeirri
metnaðarfullu dagskrá sem Ágota hefur valið fyrir okkur. Meðal annars
má geta þess að við komum væntanlega til með að syngja á sjö tungumálum á
tónleikum okkar í vor.
Þó Eyjafjallajökull hafi skolfið áður en við komum, var hann að mestu leyti til friðs þessa daga - meira að segja á laugardagskvöldinu þegar kórinn hélt mikla gleði með veglegu veisluborði og heimatilbúnum skemmtiatriðum. Það má því kannski segja að jökullinn hafi sofnað við undurfagran söng kórkvenna, því þegar kórinn var kominn i bæinn aftur, vaknaði jökullin og jörðin fór að skjálfa á ný.
Já, það eru kjarnakonur sem eru í Kvennakór Reykjavíkur, meira að segja Eyjafjallajökull þorir ekki annað en að halda sig á mottunni þegar þær eru í nágreninu.

Að lokum er rétt að minnast á það að vortónleikarnir okkar verða haldnir 9. maí í og alveg gráupplagt að taka daginn strax frá.

Skrifað: 15.mars 2010 af kollutjorva

Æfingar komnar á fullt

Vorstarfið er hafið á fullum krafti, við erum búnar að fá fullt af krefjandi og skemmtilegum lögum og æfingarnar fara vel af stað

Raddæfingarnar verða á mánudögum kl 18:30 , væntanlega út febrúar og skiptast sópran og altraddir á að mæta. Altin mætir næsta mánudag, 8.febrúar.
Allur kórinn æfir svo sem fyrr á miðvikudögum kl 20:00.
Stundarskráin er væntanleg innan tíðar en ákveðið hefur verið að æfingahelgin okkar verður fyrstu helgina í mars og svo verða tónleikar helgina 7-9 maí, þannig að endilega takið þessar helgar frá.

Síðasti dagur í upptökum er þriðjudaginn 23. febrúar. Meira um það síðar..

 


Skrifað: 1.febrúar 2010 af kollutjorva

 

Fyrsta æfing vorannar og nýr stjórnandi

Nú hefur nýr stjórnandi hafið störf með Kvennakór Reykjavíkur.
Fjölmargar góðar umsóknir bárust og niðurstaðan varð sú að ráða Ágotu Joó.
Ágota hefur stjórnað Senjorítunum í nokkur ár með frábærum árangri. Hún er vel menntuð tónlistarkona sem við væntum mikils af í framtíðinni.
Við bjóðum hana hjartanlega velkomna og hlökkum mikið til að vinna með henni.

Fyrsta æfing vorannar verður núna á mánudaginn 18. janúar kl. 18:30.
Miðvikudaginn 20. janúar kl. 20 verður svo raddæfing altradda og svo skiptast sópran og altraddir á raddæfingum á miðvikudögum væntanlega út febrúar. En á mánudögum mæta allar.

Stundaskrá vorannar verður gefin út eins fljótt og hægt er og send á kórkonur og inn á heimasíðu kórsins.

Nýjar konur og þær sem vilja koma aftur eftir eitthvert hlé eru beðnar um að skrá sig í kórsímann, 896-6468.

Æft verður eins og áður að Lindargötu 59, við Vitatorg.


Skrifað: 14.janúar 2010 af kollutjorva

 

Jólasamsöngur 2009

Að loknum vel heppnuðum jólatónleikum, býður Kvennakór Reykjavíkur styrktarfélögum og öðrum velunnurum sínum til árlegs jólasamsöngs. Söngurinn verður í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 10. desember kl. 20.
Boðið verður upp á litla söngskemmtun Kvennakórsins og Senjorítanna og heitt súkkulaði með rjóma og smákökur með samsöng á eftir.
Aðgangur er ókeypis eins og áður.
Þetta er síðasti jólasamsöngurinn með Sigrúnu Þorgeirsdóttur kórstjóra í fararbroddi.
 
Gleðileg jól!

Mynd af Kvennakór Reykjavíkur


Skrifað: 8.desember 2009 af kollutjorva

 

Aðventutónleikar 2009



Aðventutónleikar Kvennakórs Reykjavíkur verða í Guðríðarkirkju, Kirkjustétt 8, Grafarholti, miðvikudaginn 2. desember kl. 20 og laugardaginn 5. desember kl. 16.

Efnisskráin verður fjölbreytt að vanda og í anda aðventu, hátíðlegra fyrir hlé og slegið á léttari strengi eftir hlé. Við munum m.a. frumflytja verkið Hodie eftir Harald V. Sveinbjörnsson. Þetta verk er sérstaklega samið fyrir kórinn og tileinkað stjórnandanum, Sigrúnu Þorgeirsdóttur. Píanóleikari er Vignir Þór Stefánsson og með okkur mun syngja hinn ástsæli söngvari Stefán Hilmarsson.

Með þessum tónleikum lýkur 12 ára farsælu starfi Sigrúnar Þorgeirsdóttur með kórnum. Við þökkum henni kærlega samfylgdina og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.

Verð: kr 2000 í forsölu og kr 2500 við innganginn. Miðar fást hjá kórkonum, í síma 896-6468 eða á netfangið kvkor@mmedia.is

Skrifað: 19. november 2009 af kollutjorva
 

Æfingadagur Sunnudaginn 31.Okt 2009

Á sunnudag er æfingadagur haustsins.
Mæting er stundvíslega kl. 10:00 í sal FÍH við Rauðagerði 27 - sjá kort hér.
Takið með ykkur allar nóturnar, blýant og upptökutæki. Einnig nægt nesti, bæði til matar og drykkjar. Kaffinefndin ætlar að taka sér frí í þetta sinn.
Gert er ráð fyrir að við verðum búnar ekki seinna en kl. 15:00. 14:00 ef við stöndum okkur vel! 

Skvísur sem hafa verið með í upptökum og verða með í næsta holli, við verðum klukkutíma lengur.. ekki klikka á því :)

P.s.
Að sjálfsögðu minni ég á Októberfestið annaðkvöld klukkan átta stundvíslega.

 

Skrifað: 29. oktober 2009 af kollutjorva
 

Kórstjóri

Kvennakór Reykjavíkur óskar eftir
að ráða kórstjóra til starfa.
Ráðningartími er frá og 1.desember 2009.

Upplýsingar um kórastarfið eru á heimasíðu
www.kvennakorinn.is

Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um
að senda umsóknir á netfangið
kvkor@mmedia.is.

Umsóknarfrestur er til 5. október 2009.
 


Umsækjendur skulu hafa tónlistarmenntun og reynslu af kórstjórn.
Kórstjóri ber ábyrgð á efnisvali og listrænni stjórnun kórsins.

Efnisval kórsins hefur einkennst af miklum metnaði og fjölbreytni. Kórinn hefur sungið allar tegundir tónlistar. Dæmi um lagaval er hægt að finna hér, þar sem hægt er að finna efnisskrár síðustu 6 tónleika.

Í Kvennakór Reykjavíkur eru að jafnaði 70 – 90 konur. Kvennakór Reykjavíkur æfir tvisvar  sinnum í viku, frá miðjum ágúst til desember og frá janúarbyrjun til maí, ár hvert. Haldnir eru einir til tvennir tónleikar í lok annar, bæði að hausti og vori. Á haustönn era ð jafnaði einn heill æfingardagur og á vorönn eru haldnar æfingabúðir um helgi.

Kvennakór Reykjavíkur hóf starfsemi sína í janúar 1993. Hugmynd að stofnun kórsins áttu Margrét Pálmadóttir og áhugasamar konur í kórskóla Margrétar í Kramhúsinu, 1992.

Stjórnandi kórsins síðan árið 1997 er Sigrún Þorgeirsdóttir en hún tók við í september 1997.
Markmið kórsins er samkvæmt lögum hans að efla söngmennt kvenna.

Undanfarin ár hefur kórinn farið utan til tónleikahalds eða þátttöku í kóramóti. Kórinn tók t.d. þátt í fjölmennri kórakeppni í Olomuc í Tékklandi árið 2002 og vann til tvennra silfurverðlauna. Kvennakór Reykjavíkur stóð fyrir öðru landsmóti íslenska kvennakóra í Reykjavík vorið 1996 og kórinn hélt fyrsta norræna kvennakóramótið í apríl 2000.

Á fyrstu starfsárum Kvennakórs Reykjavíkur var aðsókn mikil og stofnaði kórinn þrjá nýja kóra til að anna eftirspurn, Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur, Gospelsystur og Senjorítur. Auk þess var Vox Feminae stofnaður af félögum innan Kvennakórs Reykjavíkur sem vildu syngja oftar og erfiðari verk en kórinn bauð upp á á þeim tíma. Árið 2000 var samið um að Kvennakór Reykjavíkur hætti afskiptum af rekstri hinna kvennakóranna og að þeir yrðu sjálfstæðir kórar. Kvennakór Reykjavíkur rekur nú Senjorítur, kór eldri kvenna, og kórskóla.
 


 

Skrifað: 25. september 2009 af kollutjorva
 

 

Fyrsta æfing Senjoríta

Fyrsta æfing Senjoríta Kvennakórs Reykjavíkur verður mánudaginn 14. september kl. 16 - 18.
Æft verður sem áður að Vitatorgi.

Skrifað: 9. september 2009 af kollutjorva
 

 

Hauststarfið er hafið.

Haustarfið er hafið. Loksins segi ég nú bara, ég var farin að sakna ykkar allra. Sópraninn er búin að fara á fyrstu raddæfingu vetrarins á meðan altin var í fríi.
Á Miðvikudaginn 9.sept gerum við svo aðra tilraun við upptökurnar og fá þá þær konur sem ekki eru í því frí.
Altin mætir svo á raddæfingu Mánudaginn 14. sept og svo hittumst við loksins allar aftur á miðvikudaginn 16. sept.
En þetta er nú allt hægt að sjá hér á stundaskránni sem er komin á vefinn. Spennandi tímar framundan og gaman gaman..

Skrifað: 9. september 2009 af kollutjorva
 

Hauststarfið 2009 að hefjast

Hauststarf Kvennakórs Reykjavíkur hefst með stæl með upptökum á nokkrum uppáhaldslögum okkar frá síðustu 10 árum eða svo. Haft var samband við þær konur sem æfðu á síðustu vorönn og þær beðnar um að taka þátt í fyrsta skammti. Aðrir "skammtar" verða svo teknir upp síðar á haustönninni og væntanlega taka þá þátt þær konur sem verða með á haustönn.

Fyrsta almenna æfingin verður svo Miðvikudaginn 2.september kl 20. á Vitatorgi, Skúlagötu 20. Kórkonur sem hafa hug á að koma aftur eftir hlé eru vinsamlegast beðnar um að hafa samband við Sigrúnu.
Nýjar konur sem hafa hug á að koma og syngja með frábærum kór í frábærum félagsskap, vinsamlegast hafið samband í kórsímann - 896-6468.

Stundarskrá haustsins er væntanleg á vefinn innan tíðar.

Hlökkum til að sjá ykkur hressar og kátar.

Skrifað: 19. ágúst 2009


 

Vortónleikar 2009

Auglýsing fyrir vortónleika

Vortónleikar Kvennakórs Reykjavíkur verða haldnir 3. maí næstkomandi í Langholtskirkju. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 17:00, en þeir síðari kl 20:00.

Tónleikadagskráin er fjölbreytt að venju. Fyrir hlé mun andi fegurðar og kyrrðar svífa yfir vötnum, en þá verða m.a. flutt lög eftir Elenor Daley - tóndæmi má finna hér - og Hildigunni Rúnarsdóttur; Stiklur og Carmen Fratrum Arvalium, og Í grænum mó Sigfúsar Halldórssonar í útsetningu Hildigunnar.

Eftir hlé setur kórinn á sig dansskóna, og flytur meðal annars lagasyrpu (Take the „A“ train, Mood indigo, Satin doll og If it ain‘t got that swing) eftir Duke Ellington, Sway eftir Pablo Beltrán Ruiz og Bewitched, bothered and bewildered eftir Rogers & Hart, auk negrasálma og gospels.

Miðar á tónleikana kosta 2.500kr við innganginn, en 2.000kr í forsölu hjá kórkonum, í síma 896-6468 eftir kl 16, og á netfanginu kvkor[hjá]mmedia.is.

Skrifað: 4. mars 2009


 

Æfingabúðir á Skógum

Kvennakór Reykjavíkur verður í æfingabúðum að Skógum undir Eyjafjöllum helgina 6. - 8. mars. Þar verður farið ítarlega í vordagskrána og verða stífar æfingar kvölds og morgna. Auk þess verður húllumhæ á laugardagskvöldið með góðum mat, heimatilbúnum skemmtiatriðum, leikjum og dansi. Þar verður örugglega gaman eins og ætíð í æfingabúðum kórsins. Hér má sjá myndir frá síðustu æfingabúðum, vorið 2007, en þá vorum við einnig að Skógum. Fleiri myndir þaðan má finna hér.

Æft stíft á Skógum
Húllumhæ


Skrifað: 4. mars 2009


 

Vorstarfið

Auglýsing fyrir vorstarf

Skrifað: 8. janúar 2009


 

Vorstarfið

  Nú fer vorstarfið að hefjast fljótlega og verður tímasetning auglýst á næstu dögum. Áhugasamar konur sem langar til að vera með okkur í Kvennakór Reykjavíkur geta hringt í 8966486 eða sent tölvupóst á kvkor@mmedia.is til að skrá sig.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Kvennakór Reykjavíkur

Skrifað: 6. janúar 2009


 

Jólasamsöngur

Kórfélagar bjóða upp á heitt súkkulaði og smákökur   Að loknum vel heppnuðum jólatónleikum í Kristkirkju er komið að hinum árlega jólasamsöng Senjoríta og Kvennakórs Reykjavíkur.

Jólasamsöngurinn verður í Breiðholtskirkju næstkomandi fimmtudagskvöld 11. desember kl. 20:00. Við ætlum að byrja í kirkjunni og munu bæði Senjorítur og Kvennakórinn syngja nokkur lög fyrir gesti.

Að því loknu færum við okkur niður í safnaðarheimilið þar sem boðið verður upp á rjúkandi heitt súkkulaði með þeyttum rjóma og smákökum. Þar syngjum við saman nokkur jólalög eins og áður og eigum notalega samverustund.

Aðgangur er ókeypis eins og ævinlega. Styrktarfélagar auk annarra velunnara kóranna eru hjartanlega velkomnir.

Með jólakveðju,

Kvennakór Reykjavíkur

Skrifað: 9. desember 2008
 

Auglýsing fyrir aðventutónleika 2008


Nú er komið að okkar árlegu jólatónleikum og í þetta sinn höfum við valið yndislega kirkju, Kristskirkju í Landakoti. Tónleikarnir verða miðvikudaginn 3. desember kl. 20:00 og sunnudaginn 7. desember kl. 16:00.  

Yfirskrift tónleikanna er "Ave Maria" og ber efnisval keim af því. Við munum flytja bland hátíðlegra laga og jólalegra; má þar nefna "Ég vil lofa eina þá" eftir Báru Grímsdóttur, lög úr "Söngvasveigur" eftir Britten, "Ave Maria" eftir Carrillo, "Salutatio Marie" eftir Jón Nordal, "Vögguljóð Maríu" eftir Reger og "Ó, helga nótt" eftir Adam.
 

Stjórnandi kórsins er sem fyrr Sigrún Þorgeirsdóttir, einsöngvari er hin frábæra söngkona Elín Ósk Óskarsdóttir og Elísabet Waage mun leika með á hörpu.  

Við höfum einsett okkur að halda miðaverði í lágmarki til þess að sem flestir geti séð sér fært að koma og eiga hátíðlega stund með okkur fjarri amstri dagsins. Í forsölu kostar miðinn kr. 2.000 og við innganginn mun miðinn kosta kr. 2.500.  

Hægt er að panta miða í forsölu hjá kórkonum, í síma 896-6468 (eftir kl. 16) eða í tölvupósti á netfanginu kvkor[hjá]mmedia.is.  

Megi Maríuversin okkar færa þér birtu í skammdeginu.  

Kær kveðja, Kvennakór Reykjavíkur  

Skrifað: 18. nóvember 2008
 

Kórstarfið hafið - jólatónleikar framundan

Hauststarf kórsins hefur farið vel af stað og margar góðar konur bæst í hópinn, en kórkonur eru 85 talsins á þessari önn. 

Jólatónleikar kórsins eru framundan og kórkonur því farnar að raula jólalög daginn út og inn.  

Haldnir verða tvennir tónleikar í Kristskirkju (Landakotskirkju), 3. og 7. desember. Gestir kórsins að þessu sinni eru Monika Abendroth hörpuleikari og Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona.  

Lagavalið er fjölbreytt og metnaðarfullt að venju, en meðal verka má nefna Ceremony of Carols (Benjamin Britten), Wassail! (John Owen Edwards), Ó helga nótt (A. Adam) og Ave Maria (Cesar Alejandro Carrillo), en því síðastnefnda kynntust kórkonur á námskeiði í Suður-Amerískri kórtónlist á kóramóti í Þrándheimi í vor.  

Viðbót 12.11.2008: Einnig má benda á Personent Hodie, þýskt lag frá 1360.  

 

Skrifað:  22. september 2008
 

Senjorítur hefja störf

Fyrsta æfing haustsins hjá Senjorítum er mánudaginn 8. september kl. 16:00 í sal Orkugarðs að Grensásvegi 9. Nýjar konur geta haft samband við formann kórsins, Margréti Schram, í síma 553-4156.
 


Skrifað: 3. september 2008
 

Auglýsing fyrir upphaf hauststarfs 2008

Skrifað: 27. Ágúst 2008


 


Að ofan má sjá félaga úr kórnum flytja lagið I'm beginning to see the light ásamt hjónunum Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur og Vigni Þór Stefánssyni í Íslandi í dag 14. maí 2008.

Lagið var á lagaskrá kórsins á vortónleikum sama kvöld, undir yfirskriftinni Djass og dægurlög. Lagið er eftir Duke Ellington, Don George, Johnny Hodges og Harry James og var samið 1944. 

Annað tóndæmi má finna á nýrri undirsíðu vefsins, Tóndæmi. 

Fyrsta æfing haustsins verður kl 20:00 miðvikudaginn 27. ágúst næstkomandi á sama stað og venjulega. Upplýsingar um inntöku nýrra kórfélaga verða birtar Hér innan skamms.

Skrifað: 17. ágúst 2008


 
Auglýsing fyrir vortónleika 2008

Kvennakór Reykjavíkur býður ykkur velkomin á vortónleika kórsins sem haldnir verða í Grensáskirkju miðvikudaginn 14. maí kl. 20 og laugardaginn 17. maí kl. 17. Að þessu sinn verður djass-sveifla á kórnum og höfum við fengið til liðs við okkur Guðlaugu Dröfn Ólafsdóttur söngkonu til að syngja með okkur. Einnig mun hún syngja nokkur lög ein. Stjórnandi kórsins er Sigrún Þorgeirsdóttir og píanóleikari Vignir Þór Stefánsson. Með honum leika Gunnar Hrafnsson á bassa og Erik Qvick á slagverk. Lagavalið er fjölbreytt; Íslensk, sænsk og bandarísk lög og eru mörg þeirra þekkt djass- og dægurlög frá miðri síðustu öld.  

Viðburðaríku starfsári er senn að ljúka hjá kórnum. Eftir vortónleika sl. vor fór kórinn á kóramót til Ítalíu. Á leið til Ítalíu kom kórinn við í París og hlaut þann heiður að fá að halda tónleika í Notre Dame kirkjunni. Reyndist það einstök upplifun fyrir kórinn. Í lok ferðar hélt kórinn svo tónleika í St. Ignatíusar kirkjunni í Róm. Frábærir tónleikar og fjöldi áheyrenda um 400 manns.  

Tvennir aðventutónleikar voru svo haldnir í byrjun desember 2007 og voru þeir vel sóttir.  

Í janúar átti kórinn 15 ára afmæli. Í byrjun árs 1993 var lítil og sakleysisleg auglýsing birt í blöðum þar sem auglýst var eftir konum í kvennakór og var aðsóknin slík að tíðindum þótti sæta.  

Kórinn er nú nýkominn heim frá norrænu kvennakóramóti í Þrándheimi í Noregi, en hið fyrsta héldum við í Reykjavík árið 2000. Var mjög myndarlega að öllu staðið og var stöðugt tónleikahald alla þrjá mótsdagana, þar sem konum bauðst að syngja með sínum kórum og hlusta á aðra kóra. Sjá meira um kóramótið Hér.  

Ekki var kórinn fyrr kominn heim, en lagt var af stað á Íslenskt kvennakóramót á Hornafirði, hið sjöunda í röðinni, en það var haldið 25. - 27. apríl sl. Sjá meira um kóramótið Hér.  

Í tilefni þessara kóramóta prjónuðu margar konur á sig vesti úr lopa eða annarri ull, og vakti það víða hrifningu og gleði.  

Á degi verkalýðsins, 1. maí, sáu kórkonur um veitingar hjá BSRB af miklum myndarskap.  

Sjá má myndir frá öllum þessum viðburðum, og eldri viðburðum að auki, á myndasíðu kórsins.  

Tónleikamiða er hægt að panta hjá kórkonum, í netfangið kvkor@mmedia.is og í síma 896-6468 eftir kl. 16. Í forsölu kostar miðinn kr. 2.200 en kr. 2.500 við innganginn.  

Með bestu sumarkveðjum,

Kvennakór Reykjavíkur  

Skrifað°: 2. maí 2008

Við eigum 15 ára afmæli!

Þann 25. janúar 1993 var haldin fyrsta æfing Kvennakórs Reykjavíkur og verður því haldið upp á 15 ára afmæli hans næstkomandi föstudag. 

Afmælishátíð verður það kvöld að Flatahrauni 21 (Þrastasalnum) Hafnarfirði.

Veislan hefst kl. 19.30 með fordrykk og borðhald hefst skömmu síðar. Verð á mann er kr. 3.500 sem greiðist við innganginn.  

Á matseðlinum verður þorramatur ásamt öðru og verða drykkir seldir á vægu verði á barnum. Skemmtiatriði verða í boði - bæði hjá kórkonum og e.t.v. hjá gestum? 

Allir eru velkomnir, kórkonur nýjar og eldri, makar og aðrir velunnarar. Veislugestir eru beðnir um að skrá sig hjá Margréti Hreinsdóttur á netfangið kollioggreta[hjá]simnet.is.  
  

Skrifað: 22. janúar 2008


Kórstarf vorannar að hefjast

Fyrsta æfing Kvennakórs Reykjavíkur verður miðvikudagskvöldið 9. janúar kl. 20:00 að Grensásvegi 9.  

Lagaval vorannar verður skemmtilegt og fjölbreytt að venju en litast eitthvað af því að við stefnum á tvö kóramót í vor: Kóramót Íslenskra kvennakóra á Höfn í Hornafirði og 2. norræna kóramótið sem haldið verður í Þrándheimi í apríl.  

NÝjum konum sem þið vitið um og þeim sem hafa verið í fríi í lengri tíma, en langar til að koma aftur, er bent á að hafa samband við Sigrúnu kórstjóra í síma 696 3688.  

Skrifað: 4. janúar 2008

Jólasamsöngur

Kórfélagar bjóða upp á heitt súkkulaði og smákökur   Hinn árlegi jólasamsöngur Kvennakórs Reykjavíkur og Senjoríta Kvennakórs Reykjavíkur verður haldinn í Breiðholtskirkju kl. 20:00 þriðjudaginn 4. desember.  

Kórarnir syngja nokkur jólalög, bæði saman og sitt í hvoru lagi, og bjóða að því loknu upp á heitt súkkulaði og smákökur í safnaðarheimili kirkjunnar.  

Vinir og velunnarar kóranna og kórfélaga eru boðnir hjartanlega velkomnir á jólasamsönginn.  

Skrifað: 3. desember 2007 

Skrifað: 3. desember 2007


Aðventutónleikar 2007

auglýsing

Aðventutónleikar Kvennakórs Reykjavíkur verða haldnir í Grensáskirkju 29. nóvember kl 20:00 og 1. desember kl 17:00. Dagskráin er létt og skemmtileg, og inniheldur meðal annars gospeltónlist, suður-amerískar sveiflur og þekktar íslenskar og bandarískar dægurflugur.

Miðar kosta 2.000 kr í forsölu hjá kórfélögum og í síma 896 6468, og 2.300 kr við innganginn. 

Skrifað: 13. nóvember 2007


Kæru kórsystur og aðrir vinir.

 

Eins og sést á hjálagðri auglýsingu þá er vetrarstarf Kvennakórsins að byrja.Efnisskrá vetrarins verður fjölbreytileg og skemmtileg eins og áður. Í vor stefnum við á kvennakóramótið á Hornafirði og e.t.v. víðar. 

Væntanlega er búið að hafa samband við allar þær sem voru með á síðustu önn, en ef þið vitið um einhverjar áhugasamar og góðar, gætuð þið þá vinsamlegast sent þessa auglýsingu til þeirra? 

Með kærri kveðju og þakklæti,

Kvennakór Reykjavíkur. 
 

 

Skrifað: 30. Ágúst 2007


 

Hauststarf Kvennakórs Reykjavíkur

 

Nú er hauststarfið að hefjast. Fyrsta kóræfing er 5. september kl. 20 í sal ÍSOR að Grensásvegi 9. Raddpróf verða fyrir núverandi kórkonur á næstu dögum og nýjar konur ættu að skrá sig í síma 896 6468 eftir kl. 17. Margt skemmtilegt framundan. Hlökkum til að sjá ykkur! 

Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur hefja æfingar mánudaginn 10. september kl. 16 í sal ÍSOR að Grensásvegi 9. Kórinn er ætlaður konum 60+. Skráning nýrra kórfélaga í síma 896 6468 eftir kl. 17. 

Kórskóli Kvennakórs Reykjavíkur verður starfræktur á miðvikudögum kl. 18 fyrir konur sem eru Óvanar kórsöng. Lögð er áhersla á að kynna söngtækni, þjálfa söng í röddum og kenna undirstöðu í tónfræði. Þetta er 12 vikna námskeið sem verður starfrækt ef næg þátttaka fæst. Skráning í síma 896-6468 eftir kl. 17. 
 

 

Skrifað: 25.Ágúst 2007

  

Vortónleikar Kvennakórs Reykjavíkur verða haldnir í Grensáskirkju fimmtudaginn 3. maí kl. 20:00 og sunnudaginn 6. maí kl. 17:00. 

Tónleikarnir bera yfirskriftina: Yfir vötn og höf. Þema tónleikanna er vatn og mun kórinn syngja um vatn í ýmsum myndum: Tár, regn, læki, ár og höf.  

Kórnum er sérstök ánægja að kynna til frumflutnings tvö ný lög eftir Tryggva M. Baldvinsson, tónskáld, sem hann samdi fyrir kórinn nú á vormánuðum. Lögin heita Næturregn og Sporin þín og eru samin við ljóð Davíðs Stefánssonar. Auk þessa eru á efnisskránni Íslensk verk og erlend, gömul og ný og án efa finnur hver maður eitthvað við sitt hæfi.
 

Einsöngvari með kórnum er Gunnar Guðbjörnsson, píanóleikari er Anna Guðný Guðbjörnsdóttir og Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdóttir.  

Miðaverð á tónleikana er kr. 2.300,- við innganginn en kr. 2.000,- í forsölu. 
Miðasala er hjá kórkonum eða í síma 896-6468 eftir kl. 16:00. 

Framundan hjá kórnum er ferð til Frakklands, þar sem kórinn mun halda tónleika Í hinni sögufrægu Notre Dame kirkju í París. Síðan heldur kórinn til Ítalíu og tekur þátt í kóramóti sem kennt er við Orlando di Lasso. AÐ móti loknu verður haldið til Rómar og haldnir tónleikar í St. Ignatíusarkirkjunni, fagurri kirkju sem Rómuð er fyrir góðan hljómburð. 
 

Skrifað: 2. maí 2007

 

Stofnaður hefur verið kammerkór Kvennakórs Reykjavíkur undir Stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur.  
 

Kórinn heldur tónleika í Laugarneskirkju, sunnudaginn 25. febrúar kl. 17.  
 

Kammerkórinn er 20 manna hópur úr Kvennakór Reykjavíkur sem hefur starfað frá miðjum október á síðasta ári og lýkur starfinu í bili með þessum tónleikum. Á efnisskránni eru annars vegar madrigalar frá 16. og 17. öld eftir höfuðtónskáld Breta á þessum tíma s.s. Weelkes, Dowland og Purcell. Þessi lög endurspegla ást, í gleði og sorg.  

Hinn hluti tónleikanna er nýleg verk eftir tónskáld frá Bandaríkjunum, Kanada og Nýja Sjálandi. Ljóðin eru hins vegar oftast eftir eldri skáld s.s. Yeats, Rossetti, Blakes og Shelley og hér er þemað einnig ástin.  

Meirihluti dagskrárinnar er sungin án undirleiks, en í nokkrum lögum nýtur kórinn  aðstoðar Arnar Magnússonar, píanóleikara. 

Skrifað: 23. feb. 2007

 

Skrifað: 9. nóv. 2006

Vegna góðra undirtekta og fjölda vel valinna orða um hve vel tókst til hjá okkur verða aukatónleikar þann 7. september kl. 20 að Hásölum, Strandbergi, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, á Dalvík laugardaginn 9. september kl. 14 og í hvelfingunni í Laxárvirkjun í Aðaldal kl. 20. Hér má sjá myndir frá tónleikunum þann 12. maí í Ými. 
 

Skrifað: 3. sept. 2006

Tónleikar Kvennakórsins verða í Ými 11. og 12. maí kl. 20:00.

Flutt verða lög úr söngleikjunum Sound of Music, Grease, Fiðlaranum á þakinu, Phantom of the Opera og Mamma Mia.

Einsöngvari verður hinn eini sanni Friðrik Ómar, sem m.a. söng í haust inn á bráðskemmtilegan geisladisk með Guðrúnu Gunnarsdóttur og söng eitt lagið í forkeppni Íslands í Eurovision. Að auki verður hljómsveit með okkur; Vignir Þór Stefánsson leikur á píanó, Hjörleifur Valsson á fiðlu, Birgir Bragason spilar á bassa og Erik Qvick á trommur.  
 


Skrifað: 4. maí­ 2006

 

Gamalt á döfinni