posted May 8, 2012 2:44 AM by Kolbrun Halldorsdottir
[
updated May 8, 2012 2:51 AM
]

Kvennakór Reykjavíkur býður ykkur
velkomna á vortónleika kórsins, sem haldnir verða í Fella- og Hólakirkju
miðvikudaginn 16. maí kl 20:00 og sunnudaginn 20. maí kl. 17:00
Að þessu sinni bera tónleikar kórsins
keim af því að Kvennakór Reykjavíkur mun fara í kórferðalag til Ungverjalands í
júní næstkomandi. Kórinn mun halda tónleika í Budapest á þjóðhátíðardag
Íslendinga, 17. Júní, í samstarfi við tvo blandaða kóra, Váci Harmónia Kórus og
Gaude Kórus. Í Seged, í suður Ungverjalandi, munum við syngja með kvennakórnum
Bartók Bela Nöikar. Það er því mikil eftirvænting í kórnum og tilhlökkun að
kynnast Ungverjalandi og tónlistarlífi þar undir leiðsögn kórstjórans okkar,
sem er frá Ungverjalandi.
Að vanda er lagavalið fjölbreytt. Í
flutningi kórsins nú er lögð áhersla á íslensk verk, gömul og ný til að hafa
með í farteski til útlanda. Við munum flytja íslensk þjóðlög og verk gömlu
íslensku meistaranna svo og fjölda verka eftir núlifandi íslensk tónskáld svo
sem Sköpun og fæðing, skírn og prýði eftir Huga Guðmundsson, Spinna
Minni eftir Misti Þorkelsdóttur, Ég vil lofa eina þá eftir Báru
Grímsdóttur og Haustvísur til Máríu eftir Atla Heimi Sveinsson svo fátt
eitt sé nefnt.
Kórinn mun líka spreyta sig á ungverksum
tónverkum. Má þar nefna Ejsaka, stórkostlega náttúrulýsingu eftir József
Karai og fjörugan hringdans Sárközi Karikázó, eftir sama höfund og er
mikill tungubrjótur og skemmtilegur fyrir kórinn.
Ekki má gleyma sveiflunni í hinu
sprellfjöruga mexikanska Las Amarillas, sem er þjóðlag í útsetningu
Stephen Hatfield, þar sem raddirnar skiptast á um að syngja í mismunandi takti
með tilheyrandi klappi og jafnvel danstilþrifum. Sjón er sögu ríkari!
Stjórnandi Kvennakórs Reykjavíkur er
Agota Joó og píanóleik annast Vilberg Viggósson.
Miðaverð er 3.000 kr / 2.500 kr í forsölu. Miðar fást hjá kórkonum, í
síma 8956468 eftir kl.17 og á postur@kvennakorinn.is
|
posted May 3, 2012 1:24 AM by Kolbrun Halldorsdottir
[
updated May 3, 2012 1:25 AM
]
Kvennakórinn Senjorítururnar heldur sína árlegu vortónleikaí Grensáskirkju, laugardaginn 5.maí kl. 14:00.
Á skemmtilegri efnisskrá eru bæði innlend og erlend lög.
Senjoríturnar eru sjálfstæð deild innan Kvennakórs Reykjavíkur. Söngkonur eru allar 60+ ára og hafa
margar langan söngferil að baki.
Stjórnandi kórsins er Ágota Joó og undirleikar er Vilberg Viggósson.
Aðgangseyrir er kr. 1500 fyrir fullorðna og kr. 600 fyrir börn. Ekki verður posi til að taka við kortagreiðslum á staðnum og eru tónleikagestir því benðnir um að hafa pening meðferðis.
|
posted Apr 6, 2012 11:12 AM by Kolbrun Halldorsdottir
[
updated Apr 7, 2012 4:45 AM
]
Það er allt að gerast hjá Kvennakór Reykjavíkur þessa dagana. Árshátíð nýafstaðin og tókst hún alveg ljómandi vel. Skemmtiatriðin voru glæsileg en ég held ég móðgi engan þegar ég segi að annar alt hafi átt kvöldið þar sem ungverskur dans ásamt búningum sló í gegn. Þær toppa sig á hverju ári þessar elskur :)
 Kórinn ætlar að skella sér til Ungverjalands þann 12.júní en þangað til er nóg um að vera hjá okkur. Kórinn æfir nú af krafti fyrir Whitney Houston tribute tónleika sem verða haldnir í Austurbæ þann 4.maí. Mun kórinn taka þátt í nokkrum lögum en söngvarar verða Jóhanna Guðrún, Íris Hólm, Hanna Guðný, Ína Valgerður, Guðrún Árný og Magni. Einnig munu nokkrar kórkonur sjá um bakraddir. Við erum mjög spenntar yfir því að fá að taka þátt í þessu frábæra verkefni, enda Whitney í uppáhaldi hjá mörgum. Miðar á tónleikana fást á midi.is http://midi.is/tonleikar/1/6951 og við skorum á alla að mæta.
Vortónleikar Kvennakórsins verða svo haldnir þann 16. og 20. maí í Fella- og Hólakirkju þannig að ykkur er óhætt að taka dagana frá :)
|
posted Jan 23, 2012 6:14 AM by Kolbrun Halldorsdottir
[
updated Jan 23, 2012 6:16 AM
]
Jæja, þá eru æfingar byrjaðar á fullum krafti. Þetta verður spennandi vor þar sem ungversk og íslensk lög verða í burðarhlutverki. Mörg af þessum íslensku lögum hefur kórinn sungið áður, fyrir mislöng síðan og því löngu orðið tímabært að rifja þau upp. Þetta eru lög eins og Ó, undur lífs, Sköpun, fæðing, skírn og prýði og fleiri perlur sem okkur þykir vænt um. Ástæðan fyrir þessum áherslum á ungverskt og íslenskt er sú að í Júní ætlar kórinn að bregða undir sig betri fætinum og heimsækja æskuslóðir Ágotu stjórnanda í Ungverjalandi. Þetta verður 9 daga söng- og skemmtiferð og við getum hreinlega ekki beðið eftir því að stinga tánum í Balatonvatn. Áður en við skellum okkur í sæluna munum við halda tvenna tónleika í Fella og Hólakirkju, þann 16. og 20. maí. Þangað til munum við æfa og æfa og syngja og syngja. Það er svo gaman. |
posted Jan 5, 2012 8:55 AM by Kolbrun Halldorsdottir
[
updated Jan 5, 2012 9:10 AM
]
Jæja þá er loksins komið að því, fyrsta æfing vorsins 2012 er á miðvikudaginn 11.janúar. Að venju æfum við á Vitatorgi á mánudögum kl 18:30 og miðvikudögum kl 20. Það stefnir í svakalega skemmtilega vorönn þar sem við munum syngja, syngja, syngja og grunar mig að hápunktur annarinnar verði þegar kórinn, ásamt fylgifiskum, mun skella sér í söngskemmtiferð til Ungverjalands. Þar ætlum við að skoða heimaslóðir Ágotu stjórnanda, skoða kastala, smakka vín, sigla niður Dóná, halda nokkra tónleika, baða okkur í Balaton vatni og skemmta okkur vel og vandlega.
Ef þig langar að vera með, þá er um að gera að hafa samband við Ágotu í síma 6901867 eða í tölvupósti á jagota@internet.is
Þessar myndir voru teknar í síðustu utanlandsferð, þá fór kórinn í Þrándheims í Noregi. Eins og sést er voru stelpurnar í góðu stuði, ekki nóg með að þær hafi sungið fyrir gesti og gangandi, heldur dönsuðu þær líka. Þeim er ekkert ómögulegt þessum konum :)
|
posted Nov 16, 2011 3:20 AM by Kolbrun Halldorsdottir
[
updated Nov 16, 2011 3:22 AM
]
 Við í Kvennakór Reykjavíkur viljum gera okkar til að bæta á jólastemmninguna og minnum hér á okkar árvissu jólatónleika. Oft höfum við fengið góða gesti til liðs við okkur á tónleikum, bæði einsöngvara og hljóðfæraleikara, en í ár verður fyrirkomulagið með nokkuð breyttu sniði. Heill karlakór mun bætast í okkar fríða hóp. Þetta er Karlakór Kjalnesinga undir stjórn Örlygs Atla Guðmundssonar. Raddir þessa líflega og skemmtilega karlakórs munu blandast okkar í nokkrum fallegum og vel völdum jólalögum, en einnig mun hvor kór um sig flytja sín lög. Saman mynda kórarnir 120 manna hljómmikinn kór með fallega og jólalega dagskrá sem ætti að koma öllum í rétta jólaskapið. Meðal laga á blandaðri efnisskrá má nefna Laudate Pueri e. Mendelssohn, Sálmur 100 e.Tryggva M. Baldvinsson, The Snow e.Edward Elgar, Jesús þú ert vort jólaljós , Nóttin var sú ágæt ein, Við óskum þér góðra jóla og It´s Beginning to Look a Lot Like Christmas
Tónleikarnir verða haldnir í Langholtskirkju, þeir fyrri miðvikudaginn 30. nóvember kl.20, og hinir síðari laugardaginn 3. desember kl.16. Miðaverði er stillt í hóf og er forsöluverð hjá kórfélögum beggja kóra kr.2.500, fyrir börn 6-18 ára kr.1.500. Við innganginn kostar miðinn kr.3.000.
Verið velkomin, og góða skemmtun!
|
posted Aug 29, 2011 2:28 PM by Kvennakór Reykjavíkur
Fyrsta æfing haustsins verður haldinn þann 31.ágúst kl 20 að Vitatorgi. Nýjar konur hafi samband við Ágotu á jagota@internet.is |
posted Aug 29, 2011 7:12 AM by Kvennakór Reykjavíkur
[
updated Aug 30, 2011 8:42 AM
]
T  annlæknir, amma, kennari, mamma, jarðeðlisfræðingur, dóttir og fleiri syngja, klappa og stappa inn vorið á tónleikum í Digraneskirkju 8. og 11. Maí Kvennakór Reykjavíkur tekst á við ný verkefni á hverju ári og dagskrá vortónleikanna spannar dramatísk verk, ljúf sönglög og sveiflur. Á vortónleikunum verður frumflutt tónverið ÍS eftir Báru Grímsdóttur sem hún hefur samið sérstaklega fyrir kórinn. Þar segir frá ís í fjölmörgum birtingarmyndum; frá jöklum, ísbreiðum, auri þöktum daljöklum, frostrósum og ís með dýfu. Tónverkið spannar ríflega tvær áttundir og oft sungið í sjö röddum. Ögrandi og skemmtilegt! Enn reynir á kórinn í Jaakobin pojat (Synir Jakobs) eftir finnska tónskáldið Kostiainen og slóvakískum þjóðlögum í búningi Béla Bartók. Ljúft er svo að hlusta á „Jónasarlögin“ hans Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hallgrímssonar.
Ekki má gleyma sveiflunni. Þar verður aðallega sungið á spænsku, en einnig á íslensku og ensku. Las Amarillas, sem er þjóðlag frá Mexikó, í útsetningu Stephen Hatfield. Sveiflan er allsráðandi, það er klappað í einum takti, stappað í öðrum, sungið í þeim þriðja og ekki allar raddir í sama takti. Nokkur dansspor fylgja með. Sjón og heyrn verður sögu ríkari.
Stjórnandi kórsins er Ágota Joó. Hljóðfæraleik á tónleikunum annast Vilberg Viggósson, píanó, Rúnar Þórisson, gítar og Guðjón Steinar Þorláksson, bassi.
Miðinn kostar kr. 2500 í forsölu og er hægt að fá hjá kórkonum eða panta á netfangi www.kvkor@mmedia.is eða í síma 896-6468 (eftir kl. 16), og svo við innganginn (kr. 3000). |
|