T annlæknir, amma, kennari, mamma, jarðeðlisfræðingur, dóttir og fleiri syngja, klappa og stappa inn vorið á tónleikum í Digraneskirkju 8. og 11. MaíKvennakór Reykjavíkur tekst á við ný verkefni á hverju ári og dagskrá vortónleikanna spannar dramatísk verk, ljúf sönglög og sveiflur. Á vortónleikunum verður frumflutt tónverið ÍS eftir Báru Grímsdóttur sem hún hefur samið sérstaklega fyrir kórinn. Þar segir frá ís í fjölmörgum birtingarmyndum; frá jöklum, ísbreiðum, auri þöktum daljöklum, frostrósum og ís með dýfu. Tónverkið spannar ríflega tvær áttundir og oft sungið í sjö röddum. Ögrandi og skemmtilegt! Enn reynir á kórinn í Jaakobin pojat (Synir Jakobs) eftir finnska tónskáldið Kostiainen og slóvakískum þjóðlögum í búningi Béla Bartók. Ljúft er svo að hlusta á „Jónasarlögin“ hans Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Ekki má gleyma sveiflunni. Þar verður aðallega sungið á spænsku, en einnig á íslensku og ensku. Las Amarillas, sem er þjóðlag frá Mexikó, í útsetningu Stephen Hatfield. Sveiflan er allsráðandi, það er klappað í einum takti, stappað í öðrum, sungið í þeim þriðja og ekki allar raddir í sama takti. Nokkur dansspor fylgja með. Sjón og heyrn verður sögu ríkari. Stjórnandi kórsins er Ágota Joó. Hljóðfæraleik á tónleikunum annast Vilberg Viggósson, píanó, Rúnar Þórisson, gítar og Guðjón Steinar Þorláksson, bassi. Miðinn kostar kr. 2500 í forsölu og er hægt að fá hjá kórkonum eða panta á netfangi www.kvkor@mmedia.is eða í síma 896-6468 (eftir kl. 16), og svo við innganginn (kr. 3000). |
annlæknir, amma, kennari, mamma, jarðeðlisfræðingur, dóttir og fleiri syngja, klappa og stappa inn vorið á tónleikum í Digraneskirkju 8. og 11. Maí