KVENNAKÓR REYKJAVÍKUR

 

                                                                                                                                   


  Á döfinni
  Stjórn
  Kórkonur
  Stjórnandi
  Kórskóli
  Senjorítur
  Efnisskrá
  Stundaskrá
  Myndir
  Styrktarfélag
  Viltu syngja?
  Póstlisti
  Tenglar
  Tóndæmi
  Hagnýtar upplýsingar
  Sagan

 

 

 

Kvennakór Reykjavíkur
Pósthólf 5146
Sími:  896 6468
Netfang
kvkor@mmedia.is

Mynd af Kvennakór Reykjavíkur

Hagnýtar upplýsingar um kórstarfið
Kórstarfið er ekki bara að mæta á æfingar og syngja svo á tónleikum. Á hverri önn eru fastir liðir og hér fyrir neðan koma ýmsar upplýsingar um þá ásamt öðrum hlutum sem er gott að hafa í huga.
Almennt um æfingarnar
Á æfingum er gott að mæta tímanlega, hafa blýant í farteskinu, því alltaf þarf að skrifa eitthvað til minnis í nóturnar - áherslur, framburð, styrkleika eða annað.
Mörgum okkar finnst gott að vera með upptökutæki og taka upp, til þess að hlusta á og æfa sig með heima.
Kaffi er í boði á hverri æfingu og sér kaffinefndin okkar um það. Við erum við að spara í kaffimálunum og viljum því helst að hver komi með sitt drykkjarmál.
Að æfingu lokinni röðum við borðum og stólum upp eins og húsvörðurinn á Vitatorgi vill hafa það.
Á Vitatorgi þarf alltaf ein kona að mæta fyrr til þess að vera dyravörður og hleypa öðrum konum inn. Raddirnar skiptast á um að vera í dyrunum og kemur sú kona um 15 fyrir æfingu og er í dyrunum þar til æfingin byrjar og rúmlega það.  Ef mætt er of seint á æfingarnar, og enginn er við dyrnar til að opna, þarf kona að gera vart við sig - annað hvort í gegnum gluggann uppi á hæðinni (ef einhver skyldi horfa út) eða með því að hringja í kórsímann, 8966468. Ef ekki er svarað í hann, þá er gott að hafa númer hjá einhverjum kórsystrum. Símaskrá kórkvenna er búin til og dreift eins fljótt og auðið er. .
Októberfest
Októberfest er partý. Yfirleitt er kosin undirbúningsnefnd sem sér um tónlist, skreytingar og utanumhald þannig að ekkert klikki.
Konur koma með eitthvað á sameiginlegt hlaðborð og eitthvað að drekka - áfengt eða óáfengt. Eitthvað er svo greitt við innganginn í sameiginlegan kostnað.
Raddirnar sameinast oft um einhver skemmtiatriði, við syngjum svo saman og eigum saman notalega kvöldstund. Stundum er diskótek þar sem mismunandi dansspor, hopp og teygjur eru útfærðar á listilegan hátt, en eitt er víst að það er alltaf stuð
Æfingardagur
Á æfingadegi (1. nóvember) mæta konur tímanlega og eru með nesti með sér, því gert er ráð fyrir stífum æfingum þennan tíma. Kaffi og te er framreitt á staðnum.
Aðalfundur
Á aðalfundi fer fram kosning til stjórnar og í nefndir kórsins og önnur aðalfundarstörf. Öll þessi vinna sem fer í að reka svona batterí eins og Kvennakórinn, er unnin af okkur sjálfum í sjálfboðavinnu og best er að sem flestar taki þar þátt. Því fleiri sem eru í nefndum og ráðum, því minni vinna er fyrir hverja konu. Fyrir fundinn verður sent á línuna lög kórsins og starfsreglur.
Tónleikar
 Fyrir tónleika þurfum við að reyna að selja sem flesta miða - það er mikil samkeppni á milli kóra og beinu samböndin við ættingja og vini duga best! Og ef okkur tekst að selja vel fyrir tónleika, fáum við fullt hús af fólki og vonandi hagnað af tónleikunum, en ekki tap. Liggur í augum uppi!
Styrktarfélagakerfi er í gangi sem er bæði hagstætt fyrir kórinn og tónleikagesti. Það skilar föstum tekjum fyrir kórinn og lægra verð á tónleikamiðum fyrir styrktarfélaga.
Á tónleikum mætum við tveimur klst. fyrir tónleikatíma, höfum með okkur eitthvað smálegt í nesti, eins og eitthvað að drekka, epli eða brauð. Margar taka kjólinn með sér í fatapoka og skipta um á staðnum - aðrar ekki. Stífar reglur eru um að engin hálsmen eigi að vera við kjólana. Svartar sokkabuxur, 40 den, og svartir skór - í fínni kantinum. Ekkert ilmvatn eða hárlakk, því sumar eru með slæmt ofnæmi fyrir slíku. Rauður varalitur kemur vel út þegar við erum að syngja.
Stundum er þess krafist að við kunnum lögin utanbókar og notum þá engar nótur - stundum má hafa nóturnar. Best er þó að kunna sem mest utanbókar, því þá getum við horft á stjórnandann og farið eftir hennar bendingum.
Jólasamsöngur
Þá bjóðum við Senjorítunum (kór eldri kvenna), styrktarfélögum okkar og fleirum til skemmtunar. Skemmtunin hefur síðustu ár verið í Breiðholtskirkju. Fyrst eru tónleikar í kirkjunni - við syngjum, Senjorítur líka og stundum við allar saman. Svo er farið á neðri hæðina, niður í safnaðarheimili og boðið upp á heitt súkkulaði með þeyttum rjóma og smákökum. Ein röddin í kórnum sér um að ganga um beina og allt skipulag. Kórinn kaupir smákökur, en hver og ein kona kemur með heitt súkkulaði á brúsa (uppskrift á suðusúkkulaðipökkunum) og einn pela af þeyttum rjóma. Gott er að merkja öll ílát. Þetta rennur svo ljúflega niður og svo syngjum við saman jólalögin og hápunkti er náð þegar við syngjum öll Þrettán dagar jóla!
Annar í Jólum
Á annan jóladag höfum við tekið þátt í messu í Kristskirkju. Þá mætum við í safnaðarheimilið í kórkjólum, hitum þar upp og förum í messu. Syngjum nokkur lög einar og svo messusvörin og sálmana með söfnuði. Messan er aðeins öðru vísi en í þjóðkirkjunni, en svipuð á margan hátt. Með því líkur hauststarfinu.

Skrifað: 19. Október 2009 af kollutjorva